Fjölmenni á íþróttahátíð Þróttar - Jökull íþróttamaður ársins fimm aðilar fengu bronsmerki félagsins

Íþróttahátíð Þróttar afar vel heppnuð – verðlaun og viðurkenningar veittar

 

Íþróttahátíð Þróttar fór fram í gær og tókst einstaklega vel. Stemningin var frábær, þátttaka góð og augljóst að öflugt starf félagsins skilar sér í kraftmiklum iðkenden, sjálfboðaliðum og stuðningsfólki. Viðburðurinn er mikilvægur liður í starfi félagsins.

Viðkenningar og verðlaun

Brennólið Þróttar hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir þátttöku sína á Landsmóti UMFÍ 50+ í Fjallabyggð 2025 í opnum flokki. Þessar frábæru konur settu sannarlega svip sinn á mótið með mikilli leikgleði og góðri þátttöku síðasta sumar og eru félaginu til mikils sóma.

Þakkir fyrir að hlaupa til styrktar minningarsjóð Hróars

Sex hlauparar söfnuðu samtals 236.000 kr. í Reykjavíkurmaraþoni síðastliðið sumar sem runnu í Minningarsjóð Hróars, sjóð sem styrkir starfsemi innan Þróttar. Þau sem hlutu viðurkenningu voru:

Axel Rúnar Eyþórsson, Friðrik V. Árnason, Þórir Rafn Hauksson, Marteinn Ægisson, Gunnlaugur Atli Kristinsson og Guðbjörg Kristmundsdóttir.

Framlag þeirra skiptir félagið miklu máli og endurspeglar sterkan samhug innan Þróttar.

Starfsmerki félagsins

Starfsmerki er veitt þeim sem hafa starfað fyrir félagið í þrjú ár eða lengur og eru enn að störfum. Að þessu sinni hlutu Eysteinn Sindri Elvarsson og Hreinn Ingi Örnólfsson starfsmerkið fyrir sitt dýrmæta framlag.

Sjálfboðaliði ársins

Guðrún Ósk Barðadóttir var valin Sjálfboðaliði ársins fyrir ómetanlegt starf í þágu félagsins. Sjálfboðaliðar eru burðarásinn í starfi Þróttar og er framlag Guðrúnar einstakt.

Stærstu viðurkenningar kvöldsins

Íþróttamaður ársins

Jökull Blængsson var valinn Íþróttamaður ársins. Hann hefur sýnt framúrskarandi árangur, metnað og fyrirmyndarviðhorf og er verðugur handhafi þessarar viðurkenningar.

Bronsmerki Þróttar

Bronsmerki félagsins voru veitt eftirfarandi aðilum:

Guðmundur Kristinn Sveinsson, Ingvar Leifsson og Davíð Harðarson fyrir uppbyggingu á mannvirkjum í kringum íþróttasvæðið. Í ár eru tíu ár liðin frá því að stúkan var reist við knattspyrnuvöllinn, sem þótti mikið afrek á sínum tíma, og er framlag þeirra þar ómetanlegt.

Petra Ruth Rúnarsdóttir fyrir sitt framlag til Landsmóts UMFÍ 50+ í Vogum 2024.

Gunnar Júlíus Helgason fyrir sitt mikilvæga framlag til félagsins, en hann lét af stjórnarmennsku fyrir tveimur árum eftir farsælt starf.

Einnig fengu ungir iðkendur í sundi og knattspyrnu viðurkenningu fyrir sinn árangur.

 

Íþróttahátíðin sýndi enn og aftur þann kraft og samheldni sem einkennir Þrótt. Félagið er ríkt af öflugu fólki sem leggur sig fram bæði innan vallar sem utan. Við óskum öllum verðlaunahöfum hjartanlega til hamingju og þökkum öllum sem komu að skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar.

 Áfram Þróttur!

Við munum birta fleiri myndir og fréttir með frá einstaka viðurkenningum næstu daga.

Next
Next

Íþróttahátíð Þróttar - Viðurkenningar