Fundargerðir aðalfundar UMFÞ 5. mars & framhaldsfundar 13. mars

Fundargerð aðalfundar Ungmennafélagsins Þróttar  5. mars 2026

Fundur settur klukkan 18:04.

 

1. Berglind Petra Gunnarsdóttir formaður, býður gesti velkomna og setur fundinn.

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara

Berglind Petra Gunnarsdóttir leggur til að Jóngeir Hjörvar Hlinason verði  fundarstjóri og Guðmundur Stefán Gunnarsson fundarritari. Samþykkt samhljóma.

3. Fundargerð síðasta aðalfundar

Fundargerð síðasta aðalfundar var lögð fram og samþykkt.

4. Skýrsla stjórnar

Berglind Petra Gunnarsdóttir las upp skýrslu stjórnar fyrir árið 2025. Fundargestur hrósar stjórn og félaginu fyrir öflugt starf. Sjálfboðaliðum hafi farið fækkandi og það sé ekki sjálfsagt að fólk gefi sér tíma til að sinna félaginu. Fundarstjóri hvetur fólk til að spyrja spurninga og hrósar yfirferðinni.

5. Ársreikningur félagsins

Gísli Magnús Torfason gjaldkeri fór yfir ársreikning félagsins. Fundarstjóri hvetur alla til að spyrja spurninga.

Í umræðum um reikninginn komu fram eftirfarandi spurningar:

Afhverju lóttótekjur hafi lækkað. Framkvæmdastjóri svaraði, miklar breytingar innan íþróttahreyfingarinnar hafi átt sér stað, með inngöngu íþróttahéraða og íþróttabandalaga í UMFÍ árið 2024 hafi greiðslur vegna lottó lækkað umtalsvert til félagsins. Einnig kemur ábending frá formanni ÍS að lottópeningur er settur í rekstur á svæðisskrifstofum íþróttahéraða. 

Spurt var af hverju launakostnaður hefði hækkað. Gjaldkeri útskýrði að hækkunin stafaði af því að aukastarfsmaður hefði starfað hjá félaginu í stuttan tíma.

Spurt var af hverju húsnæðiskostnaður hefði hækkað og svaraði gjaldkeri þeirri spurningu.

Lagt var til að félagið sækti um aukinn styrk þegar æfa þarf annars staðar með tilheyrandi aukakostnaði, til dæmis þegar leki kom upp í íþróttahúsinu og þegar viðgerðir stóðu yfir á laug. Stjórn tók vel í tillöguna.

Spurt var um styrk frá sveitarfélaginu. Formaður sagði að styrkurinn muni hækka 24% árið 2026. Framkvæmdastjóri bendir á að styrkurinn hafi lækkað um 15% árið 2023 og hafi ekki hækkað í nokkur ár. Formaður ÍS tók til máls og sagði að styrkur frá sveitarfélaginu væri skammarlega lægri sé tekið af öðrum íþróttafélögunum á svæðinu og bendir jafnframt á að sveitarfélög almennt þurfa að standa sig betur í stuðningi við íþróttafélög.

Spurt var um rekstur meistaraflokks í knattspyrnu og aðalstjórnar. Formaður og gjaldkeri koma á framfæri að rekstur Ungmennafélagsins og rekstur knattspyrnudeildar væru aðskildir. Knattspyrnudeild Þróttar sé rekinn á sér kennitölu eins og tíðkast annarsstaðar.

Ársreikningur félagsins var borinn upp til samþykktar og samþykktur einróma.

6. Lagabreytingar

Varaformaður fer yfir greinargerð og lagabreytingar. Upphafið að málinu er að eftir ábendingar frá skattinum vegna skráningu félagsins sem almannaheillafélag þuarf félagið að fara í smávægilegar lagabreytingar. Fundargestum er bent á heimasíðu til að fara yfir tillögur. Samþykkt samhljóma.

7. Kosning formanns

Berglind Petra formaður tilkynnir að hún ætli ekki að bjóða sig fram aftur sem formaður. Fundarstjóri óskar eftir framboði í formanns. Tillaga frá félagsmanni. Ef aðalfundur samþykkir samhljóma, og í þeirri stöðu sem upp er komin að leggja til að Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar verði kjörinn formaður félagsins.

Tillagan ekki frekar rædd, Marteinn óskar eftir fundarhlé í 10 mínútur. Gert var tíu mínútna fundarhlé.

Tilagan ekki rætt, kosning formanns fór ekki fram og því var fundi frestað kl. 21:20 og stefnan er sett á að klára fundinn innan tveggja til þriggja vikna. Dagskrárliðum 7–10 var frestað þar til fundi verður fram haldið

Fundarstjóri, hvetur fólk til að finna formann næstu daga og slítur fundi kl. 21:18.

Fundargerð – Framhalds aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar föstudaginn 13. mars.

Fundur settur kl. 17:31. Jóngeir Hjörvar Hlinason, fundarstjóri fyrri fundar, setti fundinn.

Guðmundur Stefán Gunnarsson er fundarritari.

1. Kosning formanns

Sindri Jens Freysson var kosinn formaður félagsins. Samþykkt einróma.

2. Kosning stjórnar

Kosið var í stjórn félagsins

 Gísli Magnús Torfason gjaldkeri heldur áfram í stjórn og á eitt ár eftir.

 Martyna Łozinska bauð sig fram til tveggja ára og samþykkt.

 Kristín Arna Hjaltadóttir bauð sig fram til tveggja ára og samþykkt.

 Kristín Eva Halldórdóttir bauð sig fram til eins ársog samþykkt.

 Karvel Ólafsson var að klára og bauð sig ekki aftur til aðalstjórnar.

 Björg Ásta Þórðardóttir átti eitt ár eftir og ákvað að hætta fyrr.

3. Kosning í varastjórn

 Torfi Sigurðsson var kosinn í varastjórn. Samþykkt

 Karel Ólafsson var kosinn í varastjórn. Samþykkt.

4. Félagsgjald

Lagt var til að félagsgjald félagsins héldist óbreytt. Tillagan var samþykkt.

5. Önnur mál

Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri, tók til máls og þakkaði Kristni Þór Guðbjartssyni fyrir

samstarfið síðustu ár og þakki honum sérastaklega fyrir framlag hans til félagsins. Einnig

þakkaði hann Björg Ástu Þórðardóttir og fráfarandi formanni Berglindi Petru Gunnarsdóttur

fyrir gott samstarf.

Berglind Petra Gunnarsdóttir, fráfarandi formaður, þakkaði samstarfsfólki sínu fyrir gott

samstarf á sínum tíma sem formaður og lét þá sem taka við vita að hægt yrði leita til hennar

áfram og hún sé hvergi nærri hætt.

Kristinn Þór Guðbjartsson tók til máls og þakkaði fyrir sig og sagði að það hefði verið

skemmtilegt, lærdómsríkt og gefandi að starfa fyrir félagið. Þrátt fyrir krefjandi og stundum

erfið mál hafi komið upp þá hafði þetta verið skemmtilegt.

Gunnar Helgason tók til máls og vakti athygli á þróun mála innan félagsins. Gunnar tók

saman ársreikninga félagsins síðustu ár og fjárhagslega stöðu síðustu þrjú ár og bendir á að

tekjur frá ÍSÍ, UMFÍ, KSÍ hafi lækkað verulega á milli ára. Á sama tíma hefði verkefnum

fjölgað með tilkomu svæðisskrifstofu íþróttahéraða, og annarra samstarfsaðila.

Bergur tók til máls og spurði um raunhækkun styrkja. Hann velti upp hvaða raunhækkun

hefði falist í um 24% hækkun styrk frá sveitarfélaginu fyrir núverandi ár (2026), þar sem

styrkur lækkaði um 15% 2023 og engin hækkun átt sér stað síðustu þrjú árin árin.

Björg Ásta Þorvaldsdóttir tók til máls og þakkaði fyrir samstarfið. Hún lagði til að stofnað

yrði badmintonráð innan félagsins. Hún sagði félagið hafa stórt hjarta og stóran hug og að

það væri fólkinu í félaginu að þakka. Hún lagði áherslu á að auka líkur á þátttöku fólks í

starfinu meðal annars með því að efla jákvæða umræðu um félagið. Hún benti einnig á að

félagssamtök í bænum væru hjarta sveitarfélagsins og kvaðst vilja taka þátt í að byggja upp

íþróttafélagið og samfélagið áfram. Hún hrósaði fólkinu og tók fram að innan félagsins væri

duglegt fólk og það mætti hrósa því oftar.

Að lokum tók Sindri Freyr Jensson, nýkjörinn formaður, til máls. Hann þakkaði fráfarandi

stjórn fyrir störf sín og þakkaði fyrir traustið. Hlakkar til að takast á við ný verkefni með

félaginu og kynnast öllum sem þar starfa.

Fundi var slitið 18:04

Next
Next

Æfingatímar - Gjaldskrá 2026 - 2027 - UPPFÆRT 07.10 2026