Við hlökkum til nýs starfsárs! Sindri Jens, formaður Þróttar, með skilaboð til allra Þróttara
Kæru Þróttarar,
Aðalstjórn Ungmennafélags Þróttar kynnir með stolti bækling starfsársins 2026–2027. Við viljum leggja okkar af mörkum til heilsueflandi samfélags með því að bjóða upp á fjölbreytt íþrótta- og félagsstarf fyrir fólk á öllum aldri. Íþróttir snúast ekki aðeins um árangur og sigra á vellinum, heldur einnig um andlega, líkamlega og félagslega vellíðan. Við lítum á íþróttahúsið sem hjarta bæjarins, okkar annað heimili þar sem öll eru velkomin og öllum á að líða vel. Starf félagsins gegnir mikilvægu forvarnarhlutverki fyrir börn og ungmenni í sveitarfélaginu. Við viljum tryggja að öll börn hafi tækifæri til að taka þátt, eignast góðar minningar og njóta sín í öruggu og jákvæðu umhverfi. Gott samstarf við foreldra og forráðamenn er þar ómetanlegt og lykillinn að því að gera starfið eins gott og skemmtilegt og mögulegt er. Við erum ávallt opin fyrir nýjum hugmyndum og fleiri hjálparhöndum. Þau sem vilja taka þátt í að efla starfið, leggja hönd á plóg og ganga um leið til liðs við skemmtilegan og lifandi félagsskap eru hvött til að hafa samband við mig í netfangið sindri@throtturvogum.is.
Að lokum bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á kynningarkvöld félagsins mánudaginn 31. ágúst. Þar verður starfsemi vetrarins kynnt nánar og hægt verður að kynna sér fjölbreytt úrval íþróttagreina og annarrar starfsemi sem verður í boði. Við hlökkum til nýs starfsárs og vonumst til að sjá sem flest ykkar!
Áfram Þróttur! Fyrir hönd aðalstjórnar, Sindri Jens, formaður.
Á næstu dögum mun félagið koma bæklingi til allra nemenda í Stóru-Vogaskóla - Þar er að finna upplýsingar um íþróttagreinar, skráningar og fleira gagnlegt
Einnig er hægt að taka forskot á sæluna og smella á Bæklingur — UMFÞ
Þróttur gefur út bækling á þremur tungumálum og við hvetjum alla bæjarbúa til að kynna sér allt það sem verður í gangi hjá okkur í vetur.
Nú þegar hefur verið opnað fyrir skráningar í einhverjum greinum og 25. ágúst ætti að vera hægt að skrá sig í allar þær greinar sem verða í boði.
Mynd: Sindri og Gísli sem einnig er stjórnarliði innan Þróttar að njóta sín í sínum störfum fyrir félagið.