Yfirlýsing Aðalstjórnar 13.10.2026

Yfirlýsing frá aðalstjórn Ungmennafélagsins Þróttar.

Aðalstjórn Ungmennafélagsins Þróttar hefur að undanförnu unnið að endurskoðun á starfsemi félagsins, rekstrarfyrirkomulagi og framtíðaráherslum með það að markmiði að styrkja enn frekar grunnstoðir félagsins og skapa góð skilyrði fyrir áframhaldandi uppbyggingu.

Í þeirri vinnu hefur stjórnin lagt sérstaka áherslu á að efla barna- og unglingastarf félagsins, bæta umgjörð íþróttastarfsins og tryggja að fjármunir félagsins nýtist sem best í þágu iðkenda, þjálfara, sjálfboðaliða og starfseminnar í heild. 

Sem liður í þessum breytingum hefur aðalstjórn ákveðið að endurskipuleggja framkvæmdastjórastarf félagsins og draga úr umfangi þess. Í kjölfar þeirrar ákvörðunar hefur núverandi ráðningarsamningi framkvæmdastjóra félagsins, Marteins Ægissonar, verið sagt upp.

Aðalstjórn vill færa Marteini Ægissyni innilegar þakkir fyrir hans mikilvæga og ómetanlega framlag til Ungmennafélagsins Þróttar. Marteinn hefur lagt mikla vinnu, metnað og alúð í uppbyggingu félagsins og átt stóran þátt í að móta það öfluga félagsstarf sem við búum að í dag. Framlag hans hefur skipt félagið og samfélagið miklu máli og fyrir það erum við honum afar þakklát.

Fram undan eru nýir tímar hjá Ungmennafélaginu Þrótti þar sem byggt verður áfram á þeim góða grunni sem lagður hefur verið. Áherslan verður sem fyrr á að skapa öflugt, fjölbreytt og aðgengilegt íþróttastarf fyrir alla aldurshópa ásamt því að hafa öflugt og aðlaðandi félagsstarf fyrir Þróttara og aðra bæjarbúa. 

Aðalstjórn horfir björtum augum til framtíðar og hlakkar til áframhaldandi uppbyggingar félagsins í góðu samstarfi við iðkendur, foreldra, þjálfara, sjálfboðaliða og samfélagið allt.

Ef það vakna upp spurningar þá ekki hika við að hafa samband við okkur í stjórn eða í gegnum Throttur@throtturvogum.is

Aðalstjórn Ungmennafélagsins Þróttar



Next
Next

Stjórnarfundur 208