Aðalfundur knattspyrnudeildar 26. febrúar kl 19:00

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Þróttar verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar klukkan 19:00 og fer fram í íþróttamiðstöðinni Vogum.

Knattspyrnudeild Þróttar rekur meistaraflokk félagsins í knattspyrnu, getraunadeild félagsins og kemur auk þess að hinum ýmsu verkefnum í samstarfi við aðalstjórn félagsins.

Dagskrá fundar:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Skýrsla stjórnar lögð fram.

3. Reikningar lagðir fram til samþykktar.

4. Kosning formanns.

5. Kosið í stjórn.

Önnur mál.

Þeir sem hafa áhuga á að starfa í stjórn er bent á að hafa samband við starfsmann Þróttar í síma 892-6789 eða formann, sími 662-3937

Þrír eru í stjórn deildarinnar og tveir varamenn.

Vonumst til að sjá sem flesta !!!

Kveðja, stjórn Knattspyrnudeildar Þróttar

Next
Next

Æfingatímar - Íslenska - Pólska og Enska