Aðalfundur UMFÞ fer fram 5. mars nk.

Aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar verður haldinn fimmtudaginn 5. mars 2026 í íþróttamiðstöðinni kl. 20:00.

 

Húsið opnar kl. 19:45.

 

1.           Fundarsetning

2.           Kosning fundarstjóra og fundarritara

3.           Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar

4.           Skýrsla aðalstjórnar lögð fram um starfsemi og verkefni á liðnu ári

5.           Ársreikningur 2025 lagður fram til samþykktar

6.           Lagabreytingar (Tillögur að lagabreytingum lagðar fram, hægt að kynna sér tillögurnar hér neðar)

7.            Kosning formanns

8.           Kosning annarra stjórnarmanna

9.           Kosning varamanna

10.       Ákveðið félagsgjald

 

Önnur mál


Tillögur stjórnar að lagabreytingum - sem teknar verða fyrir á næsta aðalfundi þann 5. mars


Forsendur tillagna: 

Stjórn tók til skoðunar lög Þróttar ungmennafélags í kjölfar þess að félagið fékk undanþágu við skráningu félagsins á almannaheillaskrá árið 2025. Slík skráning veitir meðal annars rétt til þess að styrkir og framlög til félagsins geti talist frádráttarbærir hjá styrkveitendum. Ástæður þess að skráningunni var hafnað voru þær að lög félagsins uppfylla ekki skilyrði laga um skráningu, þar sem þarf að tilgreina hvernig félag hyggst ná markmiðum sínum, hvernig mótteknum styrkjum verður varið og hvernig meðferð eigna er við slit á félagi auk ákvæða um félagsaðild. Tillögur stjórnar lúta að því fyrst og fremst að uppfylla skilyrði laga um skráningu á almannaheillaskrá auk viðbótarbreytinga sem stjórn taldi mikilvægt að leggja til. 

Tillaga 1: 

2. gr. hljóði svo:
Félagið er aðili að Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) og Íþróttabandalagi Suðurnesja (ÍS).  

Greinargerð: 

Stjórn leggur til tvíþættar breytingar á 2. gr. laga félagsins. Í fyrsta lagi tilgreina, auk aðildar að UMFÍ, að félagið eigi aðild að Íþróttabandalagi Suðurnesja (ÍS). Félagið á aðild að ÍS, á fulltrúa þar í stjórn og er í miklu samstarfi innan ÍS, m.a. í samskiptum við svæðisstöðvar íþróttahéraðanna. Í öðru lagi, þá leggur stjórn til þess að í lögum Þróttar sé ekki tilgreint að félagið sé “í einu og öllu” háð lögum UMFÍ og stefnuskrá. Stjórn telur að það leiði af aðild félagsins að UMFÍ að félagið hlýti lögum UMFÍ og ÍS, í samræmi við lög UMFÍ og ÍS og stefnu þeirra sem mörkuð er á sambandsþingi UMFÍ og íþróttaþingi ÍS. 


Tillaga 2:  

3. gr. hljóði svo: 

Markmið félagsins er að standa fyrir iðkun íþrótta,- uppeldis- og tómstundastarfs meðal félagsmanna, auka áhuga þeirra á líkamlegu og samfélagslegu heilbrigði og efla íþrótta- og tómstundastarf í Sveitarfélaginu Vogum.

4. gr. falli brott

Greinargerð:
Eitt af skilyrðum skráningar á almannaheillaskrá er að það liggi fyrir með skýrum hætti í lögum eða samþykktum félaga hver sé tilgangur félagsins. Af þeirri ástæðu rýndi stjórn í markmiðsákvæði félagsins. Leggur stjórn til uppfært markmiðsákvæði sem nær betur utan um starfsemi Þróttar ungmennafélags í dag. Þá er lagt til að 4. gr. falli brott en hún felur í sér upptalningu á því með hvaða hætti félagið rækir hlutverk sitt. Telur stjórn mikilvægt að félagið skilgreini hverju sinni hvaða leiðum félagið beitir til að ná markmiðum sínum og það sé eftir atvikum gert á vettvangi stefnumótunar félagsins. Óþarft sé að mati stjórnar að slíka upptalningu sé að finna í lögum félagsins.

Tillaga 3: 

Breyting á 5. gr. verði:

“og er samþykktur af stjórn” falli brott úr 1. málsl. 1. mgr. 

Greinargerð: 

Stjórn leggur til að skilyrði laganna um að aðild að félaginu sé háð samþykki stjórnar falli brott. Það tíðkast ekki að félagsaðild sé lögð á borð stjórnar og hefur það ekki verið um all nokkra hríð. Telur stjórn því ástæðu til að fella skilyrðið brott úr lögunum.

Tillaga 4: 

Ný grein bætist við sem er svohljóðandi; 

Félaginu verður ekki slitið nema á aðalfundi eða félagsfundi. Þarf til þess samþykki ⅔ atkvæðabærra fulltrúa á fundinum. Með slíkri samþykkt er störfum þess fundar tafarlaust lokið en fráfarandi aðalstjórn situr áfram með fullt umboð. Skal hún boða til annars félagsfundar þrem mánuðum síðar. Sé tillaga um slit félagsins aftur samþykkt með ⅔ atkvæðabærra fulltrúa á fundinum er félaginu slitið. 

Verði félagið lagt niður skulu eignir þess ganga til Sveitarfélagsins Voga. 

Greinargerð:
Ein af aðal athugasemdum Skattsins við lög Þróttar ungmennafélags, í tengslum við skráningu félagsins á almannaheillaskrá, er að í lögin vanti ákvæði um meðferð eigna við slit félagsins. Stjórn leggur til því að nýju ákvæði sé bætt við lögin sem kveður á um það bæði hvernig félaginu verður slitið, þ.e. hver málsmeðferðin yrði, auk þess hvert eignir félagsins fari ef slit færu fram. Ákvæði þetta er að fyrirmynd laga Breiðabliks og felur í sér að félaginu verði ekki slitið nema með auknum meirihluta á tveimur aðal- eða félagsfundum. Þá er tilgreint að eignir félagsins skuli ganga til Sveitarfélagsins Voga.  

Tillaga 6: 

Tölusetning annarra greina í lögunum breytist til samræmis við fyrri breytingar á lögunum.

Látum íþróttamál í Sveitarfélaginu Vogum okkur varða. Sýnum samstöðu og höldum áfram að efla gott starf, það getum við gert í sameiningu. Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að starfa í stjórn að senda póst á throttur@throttur.net - Allir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjald fyrir árið 2025 eru með atkvæðisrétt á fundinum. Lög félagsins eru að finna á heimasíðu félagsins.

Kveðja, UMFÞ.



Previous
Previous

Íþróttahátíð Þróttar - Viðurkenningar

Next
Next

Aðalfundur knattspyrnudeildar 26. febrúar kl 19:00