Aðalfundur UMFÞ 5. mars 2026
Aðalfundur UMFÞ -
Ársskýrsla -
Ársskýrsla Ungmennafélags Þróttar (UMFÞ) inniheldur yfirlit yfir það helsta sem fram fór í félaginu á starfsárinu 2025 og endurspeglar skýrslan því starfsemi félagsins. Þrátt fyrir að verkefnin séu ólík er það markmið stjórnar að þjónusta og styðja við iðkendur sína, þjálfara, sjálfboðaliða, foreldra, stuðningsmenn, starfsfólk og öll þau er koma að starfsemi félagsins. Þannig verður starf þeirra sterkara og öflugra, samfélaginu til heilla
Ungmennafélagið Þróttur heldur úti barna – og unglingastarfi í nokkrum greinum; sundi, knattspyrnu, bardagalistum, badminton, íþróttaskóla og rafíþróttum. Hér að neðan verður farið yfir hverja grein;
· Íþróttaskóli
Íþróttaskóli barna, á leikskólaaldri, var starfræktur á laugardögum. Íþróttaskólinn hefur verið starfræktur undanfarin 20 ár og fest sig rækilega í sessi sem mikilvægur hluti af starfi félagsins. Þátttaka í vetur hefur verið afar góð og þurfti að skipta í tvo hópa til að tryggja að allir kæmust að.
· Sund
Sund á sér langa og farsæla sögu innan UMFÞ. Sundið var á sínum tíma fellt undir fjölsport, ásamt öðrum greinum en síðastliðin tvö ár hefur verið lögð áhersla á að byggja starfið markvisst upp og hefur iðkendum fjölgað umtalsvert og kallaði það á ráðningu aðstoðarþjálfara í lok árs 2025. Starfræktir eru bæði yngri og eldri hópar innan deildarinnar og er lögð áhersla á að byggja starfið áfram markvisst upp og vera vakandi fyrir nýjum tækifærum. Hóparnir tóku þátt í sundmótum og héldu Vinamót Linde, auk þess sem haldið var innanfélagsmót í aðdraganda jóla.
· Knattspyrna
Gríðarlega góð þátttaka var í 8. flokki á árinu sem leið. Þegar mest var störfuðu þrír þjálfarar með hópnum. 8. flokkur hefur aldrei tekið þátt í jafn mörgum mótum og árið 2025.
Töluverð virkni var í 7. Flokk, karla og kvenna. 7. Flokkur tók virkan þátt í stærri mótum sumarsins auk þess sem góð þátttaka var á dagsmótum. Stúlkurnar fóru á Símamótið og drengirnir á Norðurálsmótið.
Veruleg fjölgun varð í 6. flokki og var virkni flokkanna á árinu 2025 töluverð. 6. flokkur drengja tók þátt í Orkumótinu í Eyjum og 6. flokkur kvenna keppti á Símamótinu, auk þess sem báðir flokkar sóttu fjölda dagsmóta. Vegna fjölgunar innan 6. flokks drengja er unnið að því að bæta við aðstoðarþjálfara.
· Ekki tókst að manna 4. flokk á síðasta ári, þrátt fyrir að 11 drengir hafi skráð sig til leiks. Árið hófst þó vel, með um 90% æfingasókn, en þegar æfingar í íþróttamiðstöðinni urðu ófærar vegna rakaskemmda og æfingar á sparkvelli voru hamlaðar vegna veðurs eða snjó, fór æfingasókn hratt niður í 30%. Félagið reyndi aftur í haust að endurvekja 4. flokk, bæði hjá strákum og stelpum, en eftirspurnin var lítil. Rafíþróttir
Rafíþróttaherbergið er sannkallaður ævintýrastaður fyrir þá sem hafa gaman af tölvuleikjum í góðum félagsskap og hefur félagið starfrækt rafíþróttir síðustu þrjú ár. Stjórn félagsins fannst mikilvægt að bjóða áfram upp á rafíþróttir, þrátt fyrir að tap væri á þeim rekstri, til að freista þess að ná til stærri hóps. Ákveðið var að bjóða upp á námskeið og hófst í haust átta vikna námskeið fyrir 13 ára og eldri stráka og stelpur.
· Bardagalistir
Júdó og aðrar bardagagreinar hafa verið undir fjölsporti, en í haust var stigið skrefið og bardagalistir endurvaktar. Námskeiðið er fyrir stelpur og stráka 13 ára og eldri. Síðasta haust skráðu 15 iðkendur sig til leiks, og um jólin var ákveðið að fjölga æfingum.
· Badminton
Á haustmánuðum var ákveðið að bjóða upp á opna tíma í badminton þar sem íbúum var öllum heimilt að taka þátt í æfingum deildarinnar. Tímarnir hafa notið mikilla vinsælda og árið endaði með skemmtilegu jólamóti. Unnið er að því að auka þáttöku barna og ungmenna og bindur félagið miklar vonir við að geta boðið upp á skipulagt barna- og fullorðnastarf á árinu 2026.
Auk þess að standa fyrir öflugu barna- og unglingastarfi stendur UMFÞ jafnframt fyrir öflugu starfi fyrir fullorðna, bæði á vettvangi afreks (meistaraflokkur karla í knattspyrnu) og í almenningsíþróttum.
· Knattspyrnudeild – Meistaraflokkur karla
Innan UMFÞ og undir knattspyrnudeild er starfræktur meistaraflokkur í knattspyrnu, sem hefur verið starfandi samfleytt í 18 ár. Liðið endaði í þriðja sæti 2. deildar eftir tap í hreinum úrslitaleik gegn Gróttu á Seltjarnarnesi. Tímabilið var viðburðarríkt og ríkti mikil gleði og samheldni bæði innan liðsins en líka a meðal íbúa, yngri iðkenda og annarra stuðningsmanna sem fjölmenntu á leiki liðsins, þá sér í lagi úrslitaleikinn.
Knattspyrnudeild Þróttar hefur jafnframt haldið úti félagskaffi frá árinu 2011. Ýmsar árlegar viðurkenningar eru afhentar í aðdraganda ársþings KSÍ og hlaut Þróttur Vogum sjálfbærniverðlaun KSÍ fyrir árið 2025. Var viðurkenning veitt í tengslum við þann skemmtilega viðburð sem fram fór í aðdraganda nágrannaslags Þróttar og Víðis Garði, þar sem eldri borgarar úr Vogum fengu það hlutverk að leiða leikmenn inn á völlinn, líkt og yngri iðkendur gera jafnan. Með þessu framtaki tókst að brúa kynslóðabil á táknrænan hátt, sýna að fótbolti er fyrir alla, veita eldri borgurum virðingu og styrkja tengsl félagsins við nærumhverfi sitt.
Aðalfundur deildarinnar var haldinn nýlega og í fyrsta sinn í sögu hennar er stjórn deildarinnar skipuð fleiri konum, sem er sögulegt skref.
· Brennó
Brennólið Þróttar tók þátt í Landsmóti UMFÍ 50+ í opnum flokki. Þessar frábæru konur settu sannarlega svip sinn á mótið með mikilli leikgleði og góðri þátttöku síðasta sumar og eru félaginu til mikils sóma. Allar konur í Vogum hafa tækifæri til að taka þátt í þessum skemmtilega félagsskap.
Auk fjölmargra viðburða innan einstakra deilda er töluverð starfsemi þar fyrir utan en í nánum tengslum við UMFÞ. Þar á meðal var;
· Foreldrafélag
Foreldrafélag Þróttar hefur staðið fyrir ýmsum fjáröflunum sem iðkendur félagsins hafa notið góðs af.
· Fræðsla
Aðalstjórn stóð fyrir fræðslu fyrir foreldra síðasta haust með fyrirlestrinum Jákvæð foreldrasamskipti, sem var öllum forráðamönnum iðkenda hjá Þrótti í boði. Einnig fóru fjórir þjálfarar á þjálfaranámskeið og í vor er stefnt að því að bjóða öllum fararstjórum félagsins á sérstakt fararstjóranámskeið.
· Minningarsjóður Hróars
Sex hlauparar tóku þátt fyrir Minningarsjóð Hróars og söfnuðu samtals 236.000 kr. í Reykjavíkurmaraþoni síðastliðið sumar, sem runnu til sjóðsins sem styrkir starfsemi innan Þróttar.
· Stefna UMFÞ 2026 – 2030
Stefna félagsins, sem samþykkt var á aðalfundi árið 2021, var í gildi til lok árs 2025. Félagið mun á næstu vikum vinna að endurnýjun stefnunnar fyrir 2026 – 2030, en fyrri stefnuna má kynna sér á heimasíðu félagsins.
· Íþróttahátíð Þróttar
Viðurkenningarhátíð Þróttar hefur fest sig í sessi og var afar vel sótt annað árið í röð. Hægt að kynna sér allar viðurkenningar frá upphafi á heimasíðu félagsins.
· Átaksverkefni
Félagið hóf átaksverkefni í byrjun árs þar sem æfingatafla og ýmsar upplýsingar á pólsku, ensku og íslensku var dreift í öll hús í sveitarfélaginu. Auk þess voru bæklingar um starfsemi félagsins afhentir í upphafi skólaárs, og nú í byrjun árs hafa opnir fundir fyrir íbúa af erlendum uppruna verið haldnir mánaðarlega, og þeirri vinnu verður haldið áfram næsta haust.
· Framhald frá síðasta aðalfundi
Á aðalfundi UMFÞ á síðasta ári var samþykkt að fela Petru Ruth Rúnarsdóttur, fráfarandi formanni, Kristni Þór Guðbjartssyni, varamanni, og Marteini Ægissyni, framkvæmdastjóra, að ljúka óloknu máli með samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Málið hafði verið til meðferðar undanfarna mánuði án aðkomu stjórnar félagsins og var hópnum falið að vinna það áfram og skila niðurstöðu til stjórnar UMFÞ. Síðastliðið haust var undirritaður samstarfssáttmáli milli aðila og telst málinu þar með lokið af hálfu stjórnar.
· Samstarfssamningur
Samstarfssamningur við sveitarfélagið rann úr gildi 4. júlí á síðasta ári. Formlegt samtal um gerð nýs samnings mun hefjast á næstu dögum.
· Rekstur og fjárhagur
Rekstur félagsins árið 2025 skilaði tapi upp á 704.666 kr. Á undanförnum árum hefur rekstrarumhverfi íþróttafélaga orðið krefjandi og hefur félagið fundið vel fyrir þeirri þróun. Á sama tíma og iðkendum hefur fjölgað frá árinu 2023 hefur rekstrarkostnaður hækkað verulega. Þrátt fyrir hækkun æfingagjalda hefur sú aukning ekki nægt til að mæta þeim kostnaði sem fylgir stærra og fjölbreyttara starfi.
Áskoranir tengjast einnig aðstöðumálum í Sveitarfélaginu Vogum. Skortur á viðeigandi íþróttaaðstöðu hefur leitt til þess að bæði yngri flokkar og meistaraflokkar hafa í einhverjum tilvikum þurft að sækja æfingar og keppni utan sveitarfélagsins. Slíkt hefur í för með sér aukinn kostnað, meðal annars vegna leigu á aðstöðu og hærri ferðakostnaðar.
Á síðasta ári var körfuknattleiksdeild félagsins lögð niður og við það færðust skuldir deildarinnar yfir til aðalstjórnar. Þrátt fyrir þær áskoranir hefur félagið lagt aukna áherslu á að styrkja tekjuhlið rekstrarins, meðal annars með öflugra samstarfi við styrktaraðila og auknum umsóknum í sjóði. Slík fjáröflun hefur haft veruleg áhrif á starfsemi félagsins og mikilvægt er að halda þeirri vinnu áfram á komandi árum.
Þann 17. desember síðastliðinn staðfesti Sveitarfélagið Vogar að framlag sveitarfélagsins til félagsins muni hækka umtalsvert á árinu 2026. Félagið er afar þakklátt fyrir þann stuðning sem gerir okkur betur kleift að halda úti faglegu og öflugu íþróttastarfi í sveitarfélaginu.
Á sama tíma hafa tekjur úr öðrum áttum dregist saman. Greiðslur úr Lottó hafa lækkað töluvert og hið sama á við um aðildarstyrk KSÍ sem rennur til barna- og unglingastarfs félagsins.
Stuðningur bakhjarla skiptir félagið miklu máli. Fyrirtæki, einstaklingar og aðrir styrktaraðilar hafa lagt félaginu lið með margvíslegum hætti og viljum við færa þeim öllum kærar þakkir fyrir þann stuðning.
Rekstrarumhverfi íþróttahreyfingarinnar hefur almennt þyngst og víða glíma félög við rekstrarerfiðleika. Samhliða því hefur sjálfboðaliðum fækkað, sem gerir starf íþróttafélaga viðkvæmara. Þrátt fyrir það gegnir skipulagt íþróttastarf áfram mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Það stuðlar að bættri heilsu, félagslegri þátttöku og veitir börnum og ungmennum mikilvægt uppeldis- og forvarnarumhverfi.
· Lokaorð og þakkir
Að baki er viðburðaríkt og krefjandi ár í starfi félagsins. Það er ánægjulegt að líta til baka og sjá þann árangur sem náðst hefur, bæði í starfinu og í öflugu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Árangur og starfsemi félagsins byggist fyrst og fremst á því öfluga fólki sem leggur félaginu lið.
Sjálfboðaliðar eru ein af sterkustu stoðum félagsins. Fjöldi fólks leggur fram tíma sinn, krafta og þekkingu af mikilli óeigingirni til að halda úti fjölbreyttu og metnaðarfullu starfi fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Stjórnin vill færa öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg á árinu innilegar þakkir fyrir þeirra framlag. Það er mikilvægt að við sem samfélag hlúum vel að sjálfboðaliðum okkar og sýnum störfum þeirra meiri virðingu og þakklæti.
Jafnframt viljum við hvetja foreldra og aðra áhugasama til að taka virkan þátt í starfi félagsins. Öflugt íþróttastarf byggir á samvinnu margra og með aukinni þátttöku foreldra og stuðningsaðila verður starf félagsins enn sterkara og fjölbreyttara.
Í samfélaginu okkar er mikið af öflugu fólki með sterkar og málefnalegar skoðanir á starfi félagsins. Við viljum hvetja það til að taka virkan og markvissan þátt í starfinu og láta til sín taka. Allir félagsmenn hafa kost á að bjóða sig fram til stjórnarsetu og þannig haft raunveruleg áhrif á þróun og framtíð félagsins.
Stjórnin fagnar því að unnið sé að nýrri íþróttastefnu sveitarfélagsins. Miklar vonir eru bundnar við að í þeirri stefnu verði skýr framtíðarsýn um uppbyggingu íþróttamannvirkja sem styðja mun við áframhaldandi þróun íþróttastarfs á svæðinu. Slík uppbygging er lykilforsenda þess að félagið geti mætt þörfum sívaxandi hóps iðkenda og haldið áfram að efla starf sitt til framtíðar. Vonir standa til að stefnumótunarvinnunni ljúki fyrir næsta sumar.
Á sama tíma er ljóst að kröfur sem gerðar eru til íþróttafélaga í dag eru orðnar töluvert meiri en þær voru fyrir aðeins fimm árum síðan. Rekstur, faglegt starf, öryggismál, þjálfun og skipulag gera sífellt meiri kröfur til þeirra sem koma að starfi félaganna. Því er enn mikilvægara en áður að standa saman um starfið og styðja við það fólk sem leggur félaginu lið.
Með áframhaldandi samvinnu, ábyrgð og sameiginlegum vilja til að gera gott starf enn betra er framtíð Ungmennafélagsins björt. Við skulum halda áfram að vinna saman að því að styrkja félagið okkar og skapa umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að blómstra.
Ársreikningur 2025 5. mars 2026.pdf