Framhaldsaðalfundur 13. mars nk.

Aðalfundur félagsins var haldinn þann 5. mars sl.

Á fundinum tók fundarstjóri ákvörðun um að fresta fundinum undir dagskrárliðnum kjör formanns stjórnar, þar sem ekkert framboð hafði borist til formanns. Á fundinum voru þó afgreiddar og samþykktar lagabreytingar, ársreikningur og ársskýrsla félagsins.

Berglind Petra Gunnarsdóttir, núverandi formaður, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku. Að loknum aðalfundi hefur eitt framboð til formanns borist, frá Sindra Jens Freyssyni.

Stjórn hefur því ákveðið að boða til framhaldsaðalfundar föstudaginn 13. mars kl. 17:30 í íþróttamiðstöðinni. Allir félagsmenn eru hvattir til að mæta.

Sjá fyrra fundarboð.

https://www.throtturvogum.is/frettir/aalfundur-umf

Next
Next

Ársskýrsla