Auðun Helgason framlengir í Vogunum – Hreinn Ingi verður aðstoðarþjálfari liðsins
Auðun Helgason og knattspyrnudeild Þróttar hafa komist að samkomulagi að Auðun haldi áfram með lið Þróttar á næsta ári. Auðun tók við við í lok febrúar á þessu ári og endaði liðið í þriðja sæti, 2. deildar karla í sumar og ríkir mikil ánægja með hans störf.
Auðun átti glæstan leikmannaferil á sínum tíma. Hann er uppalinn í FH en hann lék einnig með Leifri, Fram, Grindavík, Selfossi og Sindra hér á landi.
Hann lék einnig í atvinnumennsku í Sviss, Noregi, Belgíu og Svíþjóð. Þá lék han 35 landsleiki fyrir Íslands hönd.
Hann þjálfaði Fram árið 2013 en hann þjálfaði Sindra í 2. deild síðast árið 2016. Hann var einnig aðstoðarþjálfari Selfoss 2011 og 2012.
Þróttur Vogum leikur í 2. deild næsta sumar en liðið var hársbreidd frá því að komast upp í Lengjudeildina í sumar.
Hreinn Ingi Örnólfsson hefur sömuleiðis skrifað undir áframhaldandi eins árs samning sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks Þróttar Vogum.
Hreinn mun aðstoða Auðun Helgason við þjálfun liðsins en þetta er árið fjórða röð sem Hreinn er hjá félaginu.
Hreinn, spilaði á sínum ferli með Þrótti Reykjavík áður en hann kom til Þróttar Vogum fyrir þremur árum. Hreinn er uppalinn hjá Þrótti Reykjavík og lék hann alls rúmlega 200 deildar- og bikarleiki í röndóttu treyjunni, marga þeirra sem fyrirliði liðsins.
Þróttarafjölskyldan er í skýjunum með fréttirnar og hlakkar til áframhaldandi samstarfs enda hafa þeir félagar smellpassað í Vogafjölskylduna.