Loppumarkaður Foreldrafélags Þróttar lifandi kaffihús – Viltu gefa notuðum fötum eða öðrum hlutum nýtt líf ?
Foreldrafélag Þróttar stendur fyrir glæsilegum loppumarkaði og lifandi kaffihúsi helgina 2.–3. maí næstkomandi í íþróttamiðstöðinni. Um er að ræða sannkallaðan viðburð ársins þar sem bæjarbúar og aðrir Þróttarar koma saman til að styðja við öflugt starf félagsins.
Á markaðnum verður fjölbreytt úrval af varningi, þar sem gestir geta gert góð kaup og fundið falda fjársjóði.
Markaðurinn verður opinn laugardaginn frá kl. 13–16 og sunnudaginn frá kl. 12–16. Foreldrar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að taka þátt, annað hvort með því að bóka borð eða mæta og gera góð kaup.
Það kostar 3.000 krónur að leigja borð og er áhugasömum bent á að hafa samband í gegnum netfangið foreldrafelag@throtturvogar.is eða í síma 777-3513.
Allur ágóði af leigu borða rennur til yngri iðkenda félagsins. Það sem þú selur á markaði rennur auðvitað beint til þín!!!
Þetta er frábært tækifæri til að styðja gott málefni, njóta samveru og taka þátt í líflegum og skemmtilegum markaði.