Þróttur Vogum óskar eftir þjálfara fyrir nýtt starfsár 2026/27 í sundi

Þróttur Vogum óskar eftir þjálfara fyrir nýtt starfsár 2026/27. Þróttur heldur úti metnaðarfullri og vaxandi sundstarfsemi. Æskilegt er að viðkomandi einstaklingur hafi menntun á sviði sundþjálfunar og reynslu af þjálfarastörfum.

Helstu verkefni

• Þjálfun fimm til 15 ára barna og unglinga

• Uppsetning æfinga og mótamála

• Samskipti við forráðamenn, framkvæmdastjóra, stjórn og aðra samstarfsaðila

• Vinna að uppbyggingu og ímynd félagsins í samvinnu við, framkvæmdastjóra, stjórn, og aðra þjálfara

Menntunar- og hæfniskröfur

• Þekking og reynsla af sundi og sundþjálfun og/eða menntun á sviði sundþjálfunar

• Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar

• Færni í samskiptum

• Metnaður og frumkvæði

• Góð íslenskukunnátta

• Hreint sakavottorð

• Lágmarksaldur 20 ára

Þróttur Vogum leggur mikinn metnað í endurmenntun þjálfara. Því er í boði að sækja þjálfaranámskeið hjá Sundsambandi Íslands.

Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri marteinn@throtturvogum.is, S: 892-6789

Senda skal umsóknir ásamt menntunar- og ferilskrá á netfangið marteinn@throtturvogum.is fyrir 11. maí 2026.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.


Next
Next

Loppumarkaður Foreldrafélags Þróttar lifandi kaffihús – Viltu gefa notuðum fötum eða öðrum hlutum nýtt líf ?