Stjórnarfundur 203

Stjórnarfundur 203 – Fimmtudaginn 18. desember 2025, kl. 18 á skrifstofu félagsins.

Mættir: Berglind Petra Gunnarsdóttir, Kristín Arna Hjaltadóttir, Björg Ásta Þórðardóttir, Martyna Lozinska, Karel Ólafsson og Kristinn Þór Guðlaugsson. Einnig sat Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri fundinn og ritaði fundargerð. 

Gísli Magnús Torfason tilkynnti forföll. 

Fundur settur kl. 18

Dagskrá fundar: 


  1. Ungmennaráð Sveitarfélagsins Voga. 

Fulltrúi UMFÞ í Ungmennaráði Sveitarfélagsins Voga er Alex Örn Skúlason. Engar umsóknir bárust og leitaði félagið til hans. 


2. Íþróttahátíð Þróttar 2026. 

 Reglugerð  fyrir viðurkenningar lögð fram til upplýsinga og undirbúnings á íþróttahátíð Þróttar. Stjórn mun koma saman í byrjun árs og skipuleggja viðburð. 


3. Styrkur frá Sveitarfélaginu Vogum fyrir árið 2026. 

Þann 11. desember staðfesti Sveitarfélagið Vogar styrkbeiðni Ungmennafélagsins Þróttar eftir lokaafgreiðslu fjárhagsáætlunar bæjarstjórnar fyrir árið 2026. Stjórn upplýst um málið. 

Önnur mál.


Fundi slitið 18:49. 


Previous
Previous

Baradagalistir og Rafíþróttir

Next
Next

Stjórnarfundur 202