Stjórnarfundur 202

202. Stjórnarfundur  kl 18:00

27.11.2025

Mætt eru Berglind Petra Gunnarsdóttir, Martyna Lozinska, Björg Ásta Þórðardóttir og Karel Ólafsson.

 Marteinn Ægisson framkvæmdarstjóri situr einnig fundinn og Berglind ritar fundargerð.

Aðrir stjórnarliðar tilkynna forföll.

Dagskrá:

  1. Meistaravika.

-          Framkvæmdastjóri fer yfir minnisblað varðandi samstarfsverkefni ,,Meistaravika Þróttar” í janúar.

2. Samstarfssamningur við sveitarfélagið.

-          Þjónustusamningur UMFÞ og sveitarfélagsins rann út 4. júlí 2025.  Framkvæmdastjóra falið að hafa samband við sveitarfélagið og óska eftir samtali um endurnýjun samningsins.

3. Fjölskyldustuðningur - Umsókn í hvatasjóð íþróttahreyfingar.

-          UMFÞ fékk styrk úr hvatasjóð. Stjórn upplýst um verkefnið og framvkæmdastjóra falið að útbúa vinnuhóp sem mun fara af stað í vinnu við verkefnið.

4. Tilnefning aðalstjórnar í Ungmennaráð. 

-          Aðalstjórn mun óska eftir umsóknum frá ungmennum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að sitja í Ungmennaráði fyrir hönd UMFÞ

5. Samvera þjálfara og stjórnarfólks innan UMFÞ

-           Stjórn leggur til að skipulagður verði viðburður á nýju ári fyrir þjálfara og stjórnarfólk innan UMFÞ

Önnur mál

Sala KND á happdrættismiðum, aðalstjórn hvött til aðstoðar.

Samfélagsmiðlar og auglýsingar. Umræður

Fundi slitið kl 19:20



Previous
Previous

Stjórnarfundur 203

Next
Next

Stjórnarfundur 201 - 6.11.2025