Stjórnarfundur 205

Stjórnarfundur 205 – Mánudaginn 16. febrúar, 2026.

Mættir: Berglind Petra Gunnarsdóttir, Björg Ásta Þórðardóttir, Karel Ólafsson. Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri ritar fundargerð.                       

Gísli Magnús Torfason, Martyna Lozinska, Kristín Arna Hjaltadóttir og Kristinn Þór Guðlaugsson tilkynntu forföll.

Fundur settur 18:15.

Dagskrá fundar:

1.       Tillaga að lagabreytingum fyrir aðalfund UMFÞ sem fram fer 5. mars.

Farið yfir tillögur og greinargerð vegna lagabreytinga fyrir komandi aðalfund. Greinargerð og tillögur munu koma til birtingar á heimasíðu félagsins.

2.       Samstarfssamningur.

Farið yfir samninginn sem rann út 2022. Framkvæmdastjóra falið að heyra í svæðisskrifstofu íþróttahéraða á Suðurnesjum.

3.       Íþróttahátíð.

Farið yfir minnis og gátlista fyrir komandi viðurkenningarhátíð.

Önnur mál.

Fundi slitið, 19:15.

Next
Next

Stjórnarfundur 204