Stjórnarfundur 204

Stjórnarfundur 204 – Fimmtudaginn 29. janúar, 2026.

Mættir: Berglind Petra Gunnarsdóttir, Björg Ásta Þórðardóttir, Gísli Magnús Torfason, Karel Atli Ólafsson og Martyna Lozinska.

Kristinn Þór Guðbjartsson og Kristín Arna Hjaltadóttir tilkynntu forföll.

Fundur settur kl. 18

Dagskrá fundar:

1.       Íþrótta og tómstundastefna Sveitarfélagsins Voga -  Hólmfríður J. Árnadóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Sveitarfélagsins Voga óskaði eftir að fá að hitta stjórn félagsins og sat undir þessum lið. Farið yfir styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri innan félagsins. Stjórn Þróttar þakkar Hólmfríði fyrir komuna.

2.       Íþróttahátíð Þróttar 2026.

Stjórn Þróttar hefur ákveðið að halda íþróttahátíð og veita viðurkenningar sunnudaginn 15. febrúar. Stjórn félagsins mun veita bronsmerki félagsins í fyrsta sinn og aðrar viðurkenningar. Stjórn mun hittast í næstu viku til að halda áfram að skipuleggja viðburðinn.

3.       Aðalfundur UMFÞ 2026.

Formaður félagsins fer yfir undirbúning aðalfundar sem er í fullum gangi. Aðalfundur félagsins mun fara fram fimmtudaginn 6. mars.

4.       Nýting á íþróttasal.

Nýting á íþróttasal og reglur íþróttamiðstöðvar ræddar innan stjórnar.

Önnur mál.

Fundi slitið kl. 19:30

Previous
Previous

Stjórnarfundur 205

Next
Next

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Þróttar fór fram 26. febrúar