Ungmennafélagið Þróttur í Vogum hefur hlotið rausnarlegan styrk frá KSK til stuðnings barna- og ungmennastarfi félagsins.
Styrkurinn er kærkominn og mun nýtast vel til að efla það fjölbreytta íþróttastarf sem fer fram innan félagsins. Hjá Þrótti leggjum við ríka áherslu á að skapa börnum og ungmennum jákvætt, öruggt og hvetjandi umhverfi þar sem allir fá tækifæri til að taka þátt, þroskast og njóta sín.
Stuðningur fyrirtækja og annarra velunnara skiptir félagið miklu máli og gerir okkur kleift að halda áfram að byggja upp öflugt og aðgengilegt íþróttastarf í samfélaginu okkar.
Ungmennafélagið Þróttur færir KSK innilegar þakkir fyrir höfðinglegan stuðning og þann velvilja sem félaginu hefur verið sýndur.
Saman byggjum við upp öflugt íþróttastarf fyrir komandi kynslóðir.