Aðalfundur Knattspyrnudeildar Þróttar fór fram 26. febrúar
Aðalfundur Knattspyrnudeildar Þróttar fór fram fimmtudaginn 26. febrúar sl.
Gísli Magnús Torfason stjórnarliði aðalstjórnar tók að sér fundarstjórn og Marteinn Ægisson starfsmaður UMFÞ tók að sér fundarritara.
Fram kom í skýrslu og helstu punktar, núverandi stjórn knattspyrnudeildar tók við störfum á auka aðalfundi 14. október sl. Við stjórnarskipti var megináhersla lögð á að ná yfirsýn yfir rekstur og verkefni deildarinnar, ná utan um fjármálin og forgangsraða verkefnum fram að næsta aðalfundi.
Stjórnin hefur haldið reglulega fundi, að jafnaði tvo í mánuði, auk fjölda vinnufunda. Unnið hefur verið markvisst að því að styrkja rekstrargrunn deildarinnar og auka festu í starfseminni.
Tekjur deildarinnar hafa dregist saman síðustu ár og eru lægri en hjá sambærilegum félögum. Ljóst er að ekki er svigrúm til frekari samdráttar. Markmið stjórnar er að standa skil á greiðslum og vinna að því að deildin verði skuldlaus fyrir aðalfund 2027. Auka þarf tekjur með öflugri leikdögum, fjölgun styrktaraðila og markvissri fjáröflunum, auk þess sem mikilvægt er að rekstrarstyrkur sveitarfélagsins taki mið af raunverulegum þörfum.
Gengi liðsins var framúrskarandi á síðasta ári og framar björtustu vonum. Liðið endaði í þriðja sæti eftir úrslitaleik gegn Grótta og munaði litlu að komast upp um deild.
Fram undan er stefnumótunarvinna um framtíð meistaraflokks, umgjörð hans og markmið. Jafnframt verður skoðað hvernig endurreisa megi meistaraflokk kvenna, en síðast sendi Þróttur lið til leiks árið 2018 í samstarfi við Víðir Garði.
Áhersla verður áfram á góða umgjörð og áframhaldandi tengingu við samfélagið – ekki síst krakkana í Vogum sem hafa stutt vel við liðið. Leikmenn meistaraflokks eru fyrirmyndir og bera mikilvæga ábyrgð í því samhengi.
Einnig þarf að bæta aðstöðu til framtíðar. Aðgengi fatlaðra að vellinum og salernisaðstaða eru ekki ásættanleg og þar þarf úrbætur. Þá er mikilvægt að efla sjálfboðaliðastarf, þótt félagið búi nú þegar að öflugum hópi fólks sem leggur á sig ómetanlegt starf.
Fyrsti heimaleikur í 2. deild fer fram 1. maí og sá næsti heimaleikur 14. maí. Við treystum á áframhaldandi stuðning og samstöðu – því með vinnusemi, ábyrgð og jákvæðu hugarfari getum við byggt upp enn sterkara félag.
Engar breytingar urðu á stjórninni fyrir utan skipti á sætum.
Stjórn knattspyrnudeildar er þannig skipuð:
Anton Helgi Hermóðsson formaður
Sigríður Dana Stefánsdóttir
Guðrún Ósk Barðadóttir
Varamenn í stjórn:
Viðar Bjarnason
Árni Grétar Torfason